Jæja kannski ég hendi inn hérna einni færslu eða svo fyrst nýja árið er gengið í garð 
Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og síðasta ár held ég bara eitt af mínu bestu árum ef ekki bara það besta.
· Ég byrjaði að stunda jóga af fullum krafti og kynntist þar hópi af nýjum stúlkum sem við allar urðum góðir félagar.
· Ég ásamt hópi af góðu fólki héldum óvænta afmælisveislu fyrir hana ömmu Pettu þegar hún varð 85 ára.
· Ég hætti í Tengi og ákvað að gerast nemi og full time mamma
· Ég eignaðist dásamlega stelpu sem á hug minn allan 
· Ég hélt mína fyrstu skírnarveislu 
· Skrapp til Parísar með Óðni, æðisleg ferð.
· Fyrstu jólin haldin þar sem við þrjú vorum öll saman í Grindavík ásamt auðvitað liðinu þar 
Já ég held að þetta séu svona hápunktar liðins árs fyrir utan auðvitað að mín fyrsta meðganga var aðalmálið, æðislegur tími.
En nú er nýtt ár og skemmtilegir tímar framundan. Óðinn kominn flotta vinnu, ég að klára bóklega nuddnámið, Hjörtfríður árs gömul í sumar, pabbi fimmtugur og verður familían öll á Spáni að fagna því í sumar og vonandi kemst ég í verklega nuddið í haust. Ji hversu spennandi hljómar þetta
Ég get allavega ekki beðið...
Annars er allt ljómandi gott að frétta. Eins og ég sagði er ég komin í skólann og er að læra að setja saman ilmkjarnaolíur við hinum ýmsu kvillum. Bóndinn er strax farinn að njóta góðs af. Við mægður dúllumst hérna bara á daginn með jógavinum okkar þeim Kristíni Erlu og Thelmu Maríu. Við erum auðvitað löngu byrjuð í sundi með skvísuna. Litla sunddrottningin, alveg kafar á fullu og er svo montinn. Kennarinn duglegur að fá hana lánaða til að sýna hinum hversu dugleg hún er og auðvitað rifna ég alltaf úr monti
Síðan er það næst á dagskrá að við erum að fara norður næstu helgi. Ég ælta mér að komst á skíði og er tengdó held búinn að finna snjóþotu handa þeirri litlu. Óðinn er að fara í vinnuferð þannig að við mægður komum til með að vera að heimsækja vini og ættingja þarna fyrir norðan.
En ég verð líklegast ekkert sérstaklega dugleg að skrifa hérna þar sem ég lét bugast og bjó til síðu handa grallaranum mínum en ég skrifa hérna við og við.
Bestu kveðjur Erna Rún